Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

bíb Vaknaðu maður!

Jæja ég kem mér beint að efninu.

Lenti í þeirri skemmtilegu reynslu um helgina að fá óvænta heimsókn. Skemmtilegur maður aðeins í glasi og kannski vel það sem söng klámvísur og drakk vodka dry. Mér fannst þetta nú frekar skemmtilegt og lofaðist til að hitta hann á ballinu.

Ég og Hildur frænka mín fórum á ballið dönsuðum ekki heldur horfðum bara á drukkna unglinga skemmta sér. Svo um 2 leytið fórum við heim og vorum að horfa á sjónvarpið þegar við fengum heimsókn nr 2 frá þessum indæla manni sem ég lofaði í þetta skiptið að fylgja heim en náði því miður ekki að fylgja honum lengra en beint niður tröppurnar heima og svo á sjúkrahús.

Ekta ég.

Hérna ég nenni ekki að lýsa þessu betur þessi helgi var nú samt alltí allt skemmtileg frænka mín kom í heimsókn og var nr 1 í heimsóknarröð ættmenna minna og vina. Já ótrúlegt að maður fái svona margar heimsóknir ein heimsókn á 2 mánuðum hmm ha vinir og ættingjar.

Jæja nenni ekki að hafa þetta lengra að sinni.

Viðurkenni fúslega að ég þarf að fara sparka í rassgatið á sjálfum mér og fara að blogga meira ellegar enda ég í ruslafötu fullri af steypu. 


Jericho annar þáttur

Þessi Bolungarvíkur sería mín er farinn að minna á lost alltaf það sama en nú var verið að rýma Dísarland og Traðarland. Snjóflóðahætta einangrun rafmagnsleysi og varúð á Óshlíðinni.

Ég verð að segja að ég get ekki beðið eftir að taka eina þáttaröð af hinum sívinsæla gamanþætti Everybody loves Hákon á Reyðarfirði. 

Seinustu dagar hafa einkennst af miklu stressi vegna árshátíðar en með vanhæfni minni er ég að vera búnað losa mig undan öllum verkefnum. Þá er það bara að slappa af og horfa á.

Hildur frænka kemur vonandi í dag eða morgun vestur svo það verður loksins gestagangur á Hafnargötu 101.

Annars hef ég ekki frá mörgu að segja en mig hlakkar til að komast heim í nokkra daga hitta vinina og vera með smá uppistand.

Tölvukerfið í skólanum er komið í lag vííííí!!!!

Hef ekki frá meiru að segja er að sofna við REM í tölvustofunni.

 Spurning dagsins:

Hvar féll snjóflóð 1910 á Íslandi þar sem 20 manns létust?

Illa orðað en svarið þessi bless.


mbl.is Hús í Bolungarvík rýmd á ný vegna snjóflóðahættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rafmagnsleysi, snjóflóðahætta, einangrun Jericho v.s. Bolungarvík.

Ég biðst afsökunar á bloggleysinu seinustu vikur. Netið í tölvunni minni er ekki uppá marga fiska og netið í skólanum er bilað.

Allaveganna seinustu daga er ég búnað sökkva mér í þætti sem heita Jericho. Þættirnir fjalla um smábæ í Kansas. Bærinn verður fyrir því óhappi að einangrast eftir að Bandaríkin eru sprengd í öreindir með kjarnorkusprengjum.  Íbúarnir verða vitni að ýmsu miður skemmtilegu og nú seinast þegar ég horfði var maturinn orðinn að skornum skammti og íbúarnir þurftu stöðugt að vera berjast við einhverja glæpamenn.

Ástæðan fyrir því að mig langar að bera þessa þætti saman við líf mitt í Bolungarvík er sú að seinustu vikur er búið að vera snjóflóðahætta ófært á Ísafjörð eða varúð útaf óshlíðinni og rafmagnsleysi fyrir afganginn. Þetta hefur svona gert það að verkum seinustu daga að nú hef ég safnað upp matarvistum um 340 dósum af krabbasúpu og 1600 dósum af ýmsum niðursuðu vörum einsog perum, apríkósum, gulum baunum og auðvitað rauðkáli. Ég er búnað einangra kjallarann í húsinu mínu og er hann nú bæði vatnsheldur og getur tekið við bæði sjó, snjóflóðum og Kjarnorusprengingum.

jericho
Jake Green eða minns ef við færðum þetta yfir á Bolungarvík. 

 

Ég er ansi hræddur um að einlífið í Bolungarvík sé að gera mig geðveikan.

Fyrir utan geðveiki seinustu daga þá hef ég nú ekki mikið verið að brasa, kennarapartý seinustu helgi sem að ég er svona meira og meira að frétta af. Fékk kleinuhring í dag frá frænku minni inná kennarastofu útaf brandara sem ég man ekki eftir að hafa sagt og svo vita núna allir kennararnir mitt ógurlega seglaleyndarmál en því verður lýst betur seinna. 

 

 

 

 

 

200752310

Hákon Seljan aðalhetjan í þáttunum Bolungarvík.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eitt enn samt.

http://www.folk.is/dichmilch/?pb=sidur&id=732398

Hvað hef ég gert hljómsveitinn Dichmilch? 


Frábærar fréttir.

Mér lýður einhvern veginn alltaf frábærlega þegar ég heyri af því að Svíum gangi illa. Það fer um mig unaðsstraumur og mér lýður einhvernveginn einsog Svíar séu mannlegir en oft finnst manni sem að þeir séu svo fullkomnir. Þessi tilfinning sem maður fær við að lesa þetta er svona svipuð og þegar góða stelpan í bekknum fellur á prófi eða ef að pabbi hennar þarf að fara í meðferð. Maður áttar sig á því að enginn sé fullkominn og enginn hafi það fullkomið. Þó að ég hlægji kannski ekki af því þegar góðu stelpunni lýður illa þá grenja ég yfir því þegar helvítis Svíarnir hafa það skítt.

 Er ég vond manneskja?

Annars er allt ágætt í Bolungarvík ekkert stress og leynivinaleikurinn er í fullum gangi. Partý á föstudaginn og ball á Laugardaginn endilega. Ég held svei mér þá að sukkið og svínaríið sem maður flúði frá Austurlandi sé að elta mig.

En kannski fyrst að ég minnist á Austurland þá er kannski ekki úr vegi að maður setji upp lista með því sem maður saknar að austan.

- Mamma og Pabbi, ótrúlega skemmtilegt og vel gefið fólk. Sem kann að elda og þvo handklæði svo þau séu mjúk.

-Heiðarvegur 20. Blátt og hvítt og geymir bernskuminningar sem alldrei gleymast.

-ME, næst þegar ég kem austur mun ég raula Magga Eiríks slagarann Góðan daginn gamla góða skólahús með tár í augum. Alltof góður skóli til að yfirgefa.

-Félagarnir 730 strákarnir, Fellbæingarnir, Seyðfirðingarnir Egilstaðabúarnir og Kristján Geir (fannst of mikið að nefna allan Borgarfjörðin enda sakna ég Kalla Sveins ekki neitt).

-Félagslífið, leikfélagið, Heldrimannafjélagið hið konunglega, Partý og Co, Barkinn og auðvitað Kósý

-veðrið það er alltof mikið veður hérna á Bolungarvík. 

Svona þegar ég hugsa um þetta þá sakna ég Austurlands mjög mikið.

Með tár í augum eða svona næstum því þá kveð ég að sinni.

Bless

 

 


mbl.is Svíar tútna út; fjöldi of feitra hefur tvöfaldast á 25 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

1 desibil

"Nú stendur yfir undankeppni í Fyndnasta manni Íslands. Á fimmtudag í Austurbæ mátti engu muna að Hákon nokkur U. Seljan Jóhannsson myndi sigra og skeikaði aðeins einu desibili en árangur er metinn með hávaðamælingu á undirtektum áhorfenda. Helgi heitir bróðir Hákons og er sjónvarpsstjarna. Hann vill meina að bróðir sinn hafi verið miklu fyndnari en Kári Björn Þorleifsson sá sem sigraði. En þrátt fyrir áköf hvatningaróp Helga mátti hann sín lítils gegn öflugu klappliði Kára."     Tekið úr Laugardagshefti fréttablaðsins.

 Já ekki komst ég áfram í keppninni um fyndnasta mann Íslands.

Ég verð reyndar samt að segja að ég var bara mjög sáttur með mitt gengi mér fannst ég hafa staðið mig mjög vel og lét ekki stress hafa áhrif á mig og salurinn hló. Mitt markmið var svona mest að koma þarna og skemmta, en ég neita því þó alldrei að hafa stemmt á sigur.

Ég verð reyndar að segja að mér finnst ekki þessari glæsilegu keppni til sóma að mæla fyndni manna eftir keppni með látum í áhorfendum. Ég hélt að þarna yrði dómnefnd en svo verður víst bara á úrslitakvöldinu.

Annars er ég að fara á fund ég vil bara óska Kára til hamingju með sigur í undakeppni sem hann átti skilið.

takk fyrir.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband